Kristjana Stefáns og Svavar Knútur halda tónleika þar sem þau fagna útgáfu hljómplötunnar Glæður. Á plötunni er að finna fjórtán hugljúf lög, þar af þrjú frumsamin, en platan varð til upp úr samstarfi þessa músíkalska pars, sem undanfarin ár hefur haldið fjölda dúettatónleika við sívaxandi vinsældir. Á Glæðum eru m.a. hin sígildu íslensku sönglög Við gengum tvö, Í dag skein sól og Enn syngur vornóttin, en til alþjóðlegra stórsmella má telja Abbalögin One of us og When all is said and done, auk hins sígilda lags hljómsveitarinnar Styx, Boat on the river.
Kristjana Stefánsdóttir er án nokkurs efa drottning hins íslenska djassheims, en hefur þó einnig sungið hina ólíkustu stíla og komið víða við, til dæmis í leikhúsinu, þar sem hún stýrði tónlistinni í Galdrakarlinum í Oz og brá sér hlutverk trúðsins Bellu í Dauðasyndunum sjö og Jesú Litla. Kristjana hefur gefið út fjölda hljómplatna, síðast blúsplötuna Better days blues, en af henni er einmitt lagið You left me Crying, sem þau Svavar flytja saman á Glæðum.
Svavar Knútur hefur undanfarin ár skipað sér í hóp fremstu söngvaskálda Íslands og vakið mikla athygli fyrir útgáfur sínar á sígildum íslenskum söng- og þjóðlögum á plötunni Ömmu. Einnig hafa frumsamin lög hans notið mikilla vinsælda, bæði með hljómsveitinni Hraun og á fyrstu sólóplötu Svavars, Kvöldvöku.
